HEIÐARVÍGA  SAGA

16 kafli

Barði hafði verksnúð mikinn og þeir bræður sumar það og fóru vel verk fram um sumarið er nú var betur til skipað en fyrr. Nú er þar komið sumri að sjö vikur lifa sumars. Þá fer Barði að hitta Þórarin fóstra sinn til Lækjamóts. Þeir hjöluðust oft löngum við og vissu menn óglöggt hvað þeir mæltu.

"Nú mun vera mannamót," segir Þórarinn, "á milli Hóps og Húnavatns þar sem heitir Þingeyrar en eg hefi því ráðið er engi voru hér til. Nú skaltu þangað fara og reyna vini þína fyrir því að nú vættir mig að menn séu forkunnar margir er lengi hefir dvalist. Mun nú þar vera fjölmennt. Vættir mig að þar komi Halldór fóstbróðir þinn. Bið hann föruneytis og brautargengis ef þér er nokkur hugur á að fara úr héraði á braut og hefna bróður þíns."

Bær heitir á Bakka. Hann er fyrir utan Húnavatn. Þar bjó kona sú er Þórdís hét og var kölluð gefn og var ekkja. Að ráðum var með henni maður sá er Oddur hét. Hann var gildur maður fyrir sér. Ekki var hann eins kostar fégöfugur eða ættstór. Þó var hann frægur maður.

"Hann skaltu biðja fylgdar með þér. Hann ræður svörum."

Þar er kallað í sveit þeirri á Kólgumýrum og eru þar bæir margir og heitir einn bær á Meðalheimi. Þar bjó sá maður er Þorgísl hét. Hann var systrungur Gefnar-Odds að frændsemi og var hraustur maður og skáld gott og átti góða kosti fjár og gildur maður fyrir sér.

"Kveð þú hann til farar með þér."

Bær heitir að Búrfelli milli Svínavatns og Blöndu. Það er á Hálsum út. Þar bjó sá maður er Eiríkur hét og var kallaður viðsjá. Hann var skáld og eigi lítill fyrir sér.

"Hann skaltu kveðja til föruneytis með þér."

Í Langadal heitir bær á Auðólfsstöðum. Þar bjó sá maður er Auðólfur hét. Hann er góður drengur og mikill fyrir sér. Bróðir hans er Þorvaldur og er eigi hans við förina getið. Hann bjó þar sem heitir í Sléttadal. Það er upp frá Svínavatni. Þeir eru tveir bæir er svo heita. Hann var sterkastur maður að afli fyrir norðan land.

"Ekki skaltu hann kveðja til þessar ferðar og kemur til þess skapferði hans."

Bær heitir að Svínavatni og bjó þar sá maður er Sumarliði hét og kallaður gjallandi, auðigur að fé og góðum virðingum. Með honum var heima dótturson hans og hét Þorljótur Gjallandafóstri, hraustur maður.

"Bið hann til föruneytis með þér."

Eyjólfur hét maður er bjó að Ásmundargnúpi. Það er milli Vatns og Víðidals.

"Hann skaltu hitta. Bið hann fara með þér. Hann er vinur vor."

"Nú vættir mig," segir hann, "að lítt verði í ráðið ef þetta flytur þú fram á mannamótinu og leitar þar við þá um þetta mál og segir svo að þeir skulu eigi skyldir til farar með þér ef eigi kemur þú þann næsta laugardag til hvers þeirra er fimm vikur eru til vetrar. Og þann skaltu eigi hafa með þér er þá er eigi búinn fyrir því að sá er engi öruggur. Því skaltu þessa menn heldur velja til farar með þér en aðra sveitarmenn að þessir eru nauðleytamenn hver annars og eiga allir góða kosti og svo frændur þeirra eigi síður og er það þvílíkt sem þeir eru sjálfir. Og þessir eru röskvastir af öllum þeim er hér eru í Víðidal og öllum vorum sveitum og þeir munu yður best viljaðir er vorir vinir eru mestir. Nú er ólíkt hvort er að hafa með sér góða drengi og hvata eða einhleypinga óreynda þá er sér eiga einkis góðs kosti ef nokkuð hendir til vandræða. Nú eru og ráðnir til farar með þér heimamenn þínir og nábúar er bæði eru frændur þínir og tengdamenn, Eyjólfur mágur þinn frá Borg. Hann er hraustur maður og góður drengur."

Bær heitir í Vesturhópi á Þernumýri. Þar búa bræður tveir. Hét annar Þóroddur, Þorgísl annar og voru Hermundarsynir og bræðrungar Barða að frændsemi og áttu góða kosti fjár og miklir kappsmenn og góðir áræðis.

"Þeir eru ráðnir til farar með þér."

Nú eru þeir ráðnir bræður til farar þrír.

Enn eru nefndir bræður tveir er þar voru heima með honum og hét annar Ólafur en annar Dagur. Þeir voru systrungar Barða og höfðu þar upp vaxið með Guðmundi.

"Þeir eru ráðnir til farar með þér."

Enn eru nefndir tveir menn. Hét maður Grís og var kallaður Koll-Grís. Hann var þar upp fæddur í Ásbjarnarnesi. Hann var hagur maður og verkstjóri þeirra og hafði þeim lengi verið vel viljaður. Annar hét Þórður og var kallaður melrakki. Hann var fóstri þeirra Þuríðar og Guðmundar. Höfðu þau hann tekið lítið barn af volaði og fætt upp. Hann var alroskinn og vel að sér ger og það segja menn að fyrir hann var einskis örvænt, orðs né verks, og unnu þau honum mikið og virtu hann meira en hann var verður.

"Hann er ráðinn til heimanfarar með þér."

Nú eru nefndir þeir menn er fara skyldu með Barða. Nú er þeir hafa slíkt talað skiljast þeir.

17 kafli

Drottinsdaginn kemur Barði til Lækjamóts og ríður þaðan til mannamóts. Og er hann kemur þar þá er komið fjölmenni mikið og er þar skemmtan góð. Var mönnum nú forkunnur á skemmtan er lengi höfðu niður verið lögð mannamót. Nú var lítt í ráðið þótt mönnum væri tíðrætt á þeim fundi.

Takast að orðum þeir Halldór fóstbræður og Barði. Spyr Barði hvort hann vildi fara með honum nokkuð um haustið úr héraði.

Halldór segir að "ei mun það þykja tekið minnar handar mikilmannlega til orðs að eg þykist eigi búinn að fara. Nú er ferð mín albúin á braut en eg hefi ætlað að fara tvívegis. Nú hefi eg það ætlað ef svo fer sem eg vil að koma þér að liði er meira væri, ef þú þyrftir í nokkura nauðsyn héðan frá, fyrir því að margir eru betur til fallnir fararinnar að því er eg hygg að þú viljir fara."

Barði lætur sér skiljast að svo er sem hann sagði og kveðst honum eigi mundu verri vinur en áður.

"En eg mun biðja þig nokkurs hlutar," segir Halldór. "Það var hér í sumar að mig skildi á við mann þann er heitir Þórarinn og varð hann fyrir áverka af mínu tilræði. Hann er lítils verður fyrir sínar sakir en þeir menn beiða bóta fyrir er hann er í þingi með og eru þeir mikils verðir. Nú hæfir mér eigi að varna þeim bóta, þeim Eilífi og Höskuldi. Vil eg að þú sættist á fyrir mína hönd en eg get eigi að mér. Þó hefi eg áður synjað að bjóða þeim yfirbætur."

Barði gengur þegar að hitta þá Höskuld og Eilíf og tekur máli þegar fyrir Halldór og leggja þeir fund með sér að sættast á mál, er fjórar vikur væru til vetrar, að Klifum að búi Þórarins.

Nú kemur Barði á mál við Gefnar-Odd að hann fari með honum til Borgarfjarðar suður.

Oddur svarar brátt því máli "og þótt þú hefðir kvatt vetri fyrr eða tveimur þá mundi eg þó búinn þeirrar ferðar."

Þá hitti Barði Þorgísl systrung Odds og talar hið sama mál.

Hann svarar: "Það munu menn mæla að ei hafir þú þessa fyrr kvatt en von var og mun eg fara ef þú vilt."

Hittir hann Arngrím fóstra Auðólfs og spyr ef hann muni vera í för með honum.

Hann svarar: "Búinn em eg þegar er þú ert búinn."

Slíkt hið sama mælti hann við alla þá er fyrr voru nefndir og tóku allir vel hans máli.

Nú mælti Barði að "þér hafið drengilega af þessu við mig. Nú mun eg koma laugardag til yðar er fimm vikur eru til vetrar og ef eg kem ei svo þá eruð þér einskis skyldir með mér að fara."

Ríða nú heim af mannamóti.

Hittast þeir nú fóstrarnir, Þórarinn og Barði, og segir Barði honum hvað þeir Halldór ræddust við.

Þórarinn lætur vel yfir því og kvað ei að síður þessa för mundu fram komast að ei færi hann "og má hann enn vel koma þér að haldi og því hefi eg fyrir svo skömmu gert vart við þessa för að eg vildi að sem síst komi frétt áður í hérað þeirra Borgfirðinga."

18 kafli

Nú líður svo fram að föstudeginum í hinni séttu viku. Og að eykt dags þá komu heim húskarlar Barða og höfðu þá lokið mjög svo heyverkum.

Barði var úti og þeir bræður er þeir komu heim verkmennirnir. Heilsuðu þeir þeim vel. Höfðu þeir með sér verksfæri sín og dregur Þórður melrakki eftir sér ljáorf sitt.

Barði mælti: "Dregur Melrakki eftir sér halann sinn nú."

"Svo er," segir hann Þórður, "að eg dreg eftir mér halann minn og ber eg lítt upp eða ekki. En þess varir mig að þú dragir þinn hala mjög lengi áður þú hefnir Halls bróður þíns."

En Barði hefndi honum öngu orði. Ganga menn til borða. Þeir bræður matast skjótt og stíga undan borðinu þegar og gengur Barði fyrir Þórð melrakka og mælti við hann, leggur fyrir hann verk hvað hann skal gera um aftaninn og um daginn eftir laugardag.

Fjórir tigir sátna voru ófærðir saman í Ásbjarnarnesi og það mælti Barði að það skal hann saman færa og lúka því um aftaninn "en þú skalt fara á morgun að sækja forustugelding vorn er heitir Fleygir því að geldingar eru gengnir úr afrétt og heim í haga" - því vísaði hann honum til þess að hann var verra að henda en aðra sauði og var hann skjótari - "nú skaltu og á morgun sækja í Ambáttardal yxin fimm vetra gamalt er vér eigum og drepa af og færa slátrið allt til Borgar suður laugardag. Verkið er mikið en ef ei er unnið þá muntu reyna hvor halann sinn ber brattara þaðan frá."

Þórður svarar og kveðst oft hafa heyrt hót hans digur og blotnar hann ei við.

Nú ríður Barði um aftaninn til Lækjamóts og þeir bræður og hjala þeir Barði og Þórarinn um aftaninn.

19 kafli

Nú er að segja frá sýslu Þórðar hversu honum endist. Saman ók hann heyið er staðið hafði í Víðinesi. En þá er hann kemur heim þá býst smalamaður að reka fé sitt út á Björg og ríður Þórður hesti þeim er hann hafði ekið á um aftaninn og nú finnur hann geldingaflokk sem honum hafði verið til vísað og fær ei sótt fyrr en út að Hópsósi. Nú gerir hann til geldinginn og ríður heim með slátrið. Nú hefir hann sprengdan hestinn. Nú tekur hann annan hest og hleypir yfir í dalinn sem leið liggur fyrir. Ekki hirðir hann hvort hann fer á dögum eða nóttum. Nú kemur hann árdegis þar og fær yxinið og drepur af og gerir til, bindur upp á hestinn og fer síðan leiðar sinnar og kemur heim, leggur af hestinum, tekur slátur geldingsins. Og er hann kemur aftur þá var á brautu einn limur oxans. Þórður mælti ei gott. Maður gengur í gegn, að á braut kveðst tekið hafa, og bað hann ei dirfa sig um að ræða nema hann vildi hafa högg. Tekur hann annað slátrið og fer til Borgar suður sem honum var boðið.

Nú tekur Ólöf systir Barða og fóstra hennar við slátrinu. Sú hét og Ólöf. Hún var vitur kona og fóstra Barða og þeirra Guðmundarsona. Hún var kölluð kjannök og voru svo skilið nöfn með þeim. Ólöf fóstra Barða var vitur mjög og kunni mart gerla að sjá og þeim vel viljuð Guðmundarsonum. Hún var fróð og forn í skapi.

20 kafli

Nú er frá því að segja hvað þeir hjöluðust við fóstrar, Þórarinn og Barði, áður hann væri í braut búinn. Þeir hjöluðu mart. Það var laugarmorguninn snemma. Skyldi hann þá fara að finna föruneyti sitt er með honum skyldu fara. Og þá er hann er búinn til brautreiðar þá eru þar leiddir fram hestar tveir hvítir og svört eyru á hvorumtveggja. Þá hesta átti Þórður frá Breiðavaði. Þeir höfðu horfið um sumarið á þingi.

Nú mælti Þórarinn: "Hér eru hestar Þórðar. Skaltu fara og færa honum og þiggja engi laun af honum fyrir og ei er þess vert fyrir því að eg réð er þeir hurfu og hafa í minni varðveislu verið. Og var torsætt að þeirra hefði neytt verið. En því lét eg hesta þessa taka að mér þótti þetta merkilegra, að spyrja eftir hestum þessum en dusilhrossum og hefi eg oft senda menn til Borgarfjarðar suður í sumar að spyrja eftir þeim. Þótti mér það vera merkilegt erindi og vættir mig að eigi mundi í það ráðið. Og nú hefi eg sendan mann af nýju suður og mun sá sunnan koma á morgun og segja tíðindi sunnan úr héraðinu."

Þá var kaupstefna á Hvítárvöllum og voru skip komin af hafi litlu fyrr en það var.

21 kafli

Nú ríður Barði þaðan og kemur á Bakka þar sem Þórdís bjó og stóð þar hestur söðlaður og skjöldur stóð þar hjá og riðu þeir heim mikinn dyn í túnið eftir hörðum velli. Þar var úti karlmaður og kona og þó hún höfuð hans og voru þau Þórdís þar og Oddur. Og var að vanlyktum nokkuð er hún þó höfuð hans og hafði hún eigi þvegið löður úr höfði hans. Og þegar er hann sá Barða þá sprettur hann upp og fagnar honum hlæjandi. Barði tók vel kveðju hans og biður konu lúka verki sínu og vaska honum betur. Hann lét svo gera og nú býst hann og fer með Barða.

Nú koma þeir út yfir Blöndu til Breiðavaðs og færa Þórði hesta sína.

Það er að segja að í þann tíma var Þorgísl Arason riðinn norður til Eyjafjarðar á þeirri vikunni er um var liðin er hann skyldi kvongast að Þverá og var hans norðan von á annarri viku.

Þórður tekur vel við hestum sínum og býður góða hesta gelda að launum.

Hann kveðst ei vilja laun fyrir þetta og svo kvað hann þann bjóða er hestana hafði heimta: "Skal þín vinur," segir hann, "í þörf neyta."

Ríður Barði í Langadal og á völluna mjög svo að bæ Auðólfs. Nú sáu þeir að maður reið úr túninu ofan og kenna þeir Arngrím förunaut sinn er vera skyldi og ríður hann nú með þeim. Ríða nú vestur yfir Blöndu til Eiríks viðsjá og koma þar er fé var embætt að morgunmáli milli miðdegis og dagmála og hitta smalamann og spurðu hvort Eiríkur væri heima.

Hann sagði að hann var á hesti í sólarupprás "og nú vitum vér eigi hvert hann hefir riðið."

"Hvað þykir þér líklegast hvert hann mun riðið hafa?" og kemur í hug að hann mun skotist hafa undan og vilja ei fara.

En ei bar svo raun vitni að hann hefði undan skotist. Sáu þeir þá tvo menn ríða ofan meðfram Svínavatni, þaðan var víðsýnt af bænum, og kenndu að þar var Eiríkur viðsjá og Þorljótur Gjallandafóstri. Þar hittast þeir við á þá er heitir Laxá er fellur úr Svínavatni. Fagna hvorir öðrum vel, ríða til þess er þeir koma til Þorgísl á Meðalheim. Þeir kvöddust vel og ríða síðan leiðar sinnar og komu nú mjög að Gljúfurá. Þá mælti Barði að menn skyldu ríða til bæjar að Ásmundargnúpi og hitta Eyjólf Oddsson.

"Maður ríður," segir hann, "og ei seint frá bænum út og ofan með ánni. Vættir mig," segir hann, "að þar sé Eyjólfur. Get eg hann munu vera við vaðið er vér komum þar og ríðum fram."

Svo gerðu þeir.

Nú sjá þeir mann við vað, kenna þar Eyjólf, hittast nú og kvöddust vel, fara nú leiðar sinnar og komu þar sem heitir á Ask í Víðidal.

Þá riðu í mót Barða og förunautum hans þrír menn í litklæðum og hittust þeir brátt er hvorir riðu í mót öðrum og voru hér tveir systursynir Barða í þeirri för og hét annar Lambkár en annar Húnn og þá er hinn þriðji vatnsdælskur í för með þeim. Þeir höfðu komið út vestur í Víðidal allir. En Guðbrandur faðir þeirra og Guðrún móðir þeirra bjuggu út í Víðidal á bæ þeim er síðan heitir á Guðbrandsstöðum. Nú verður þar fagnafundur mikill með þeim frændum er Barði hittir systursonu sína. Segja hvorir öðrum tíðindi. Barði segir för sína hvert hann ætlaði. Þeir voru átján vetra gamlir og höfðu einn vetur utan verið. Þeir voru hinir mestu ágætismenn að vænleik og að afli og að íþróttum og þó væru þeir vel að sér gervir þótt þeir væru fulltíði að aldri. Nú réðu þeir ráðum sínum og kveðst þeim á því hugur að ráðast í för með þeim en förunautur þeirra fer í Víðidal.

Barði ríður nú þar til er hann kemur til Lækjamóts og segir nú fóstra sínum svo búið.

"Nú skaltu ríða heim í Ásbjarnarnes en eg mun á morgun ríða til fundar við þig og með mér Þorbergur son minn. Mun eg þá ríða á leið með yður."

22 kafli

Nú fer Barði heim og föruneyti hans og er heima nótt þá. Um morguninn býr Koll-Grís þeim dögurð. En það var siður að lagður var matur á borð fyrir menn en þá voru öngvir diskar. Það varð til nýnæmis að af hurfu þrennar deildirnar fyrir þremur mönnum. Gekk hann og sagði til þess Barða.

"Hef þú fram borð," segir hann, "og ræð ekki um það fyrir öðrum mönnum."

En Þuríður mælti að þeim sonum hennar skyldi ekki deila dögurð og kvaðst hún deila mundu. Svo gerir hann að hann hefur borð fram, borð fyrir mann, og deilir mat á. Þuríður gengur þá innar og leggur sitt stykki fyrir hvern þeirra bræðra og var þar þá yxinsbógurinn og brytjaður í þrennt.

Tekur hann Steingrímur til orða og mælti: "Þó er nú brytjað stórmannlega móðir og ekki áttu vanda til að gefa mönnum svo kappsamlega mat og er á þessu mikið vanstilli og ertu nær óvitandi vits."

Hún svarar: "Ekki er þetta furða nein og máttu þetta ekki undrast fyrir því að stærra var Hallur bróðir yðar brytjaður og heyrði eg yður ekki þess geta að það væri nein furða."

Hún lætur fylgja slátrinu sinn stein fyrir hvern þeirra. Þeir spurðu hvað það skyldi merkja.

Hún svarar: "Melt hafið þér það bræður er ei er vænna til en steina þessa er þér hafið ei þorað að hefna Halls bróður yðars, þvílíks manns sem hann var, og eruð þér orðnir langt frá yðrum ættmönnum er mikils eru verðir og ei mundu þeir þvílíka skömm eða hneisu setið hafa sem þér hafið þolað um hríð og margra ámæli fyrir haft."

Gekk hún utan og innar eftir gólfinu eiskrandi og kvað vísu:

Brátt munu Barða frýja

beiðendr þrimu seiða.

Ullr, muntu ættar spillir,

undlinns, taliðr þinnar

nema lýbrautar látir

láðs valdandi falda,

lýðr nemi orð sem kváðum,

lauðrhyrs boða rauðu.

Nú hrinda þeir fram borðum og öllu því er á var og ganga til hesta sinna og búast hvatlega. Það var drottinsdaginn er fimm vikur voru til vetrar. Nú stíga þeir á bak hestum sínum og ríða á braut úr túni.

Nú sjá þeir það bræður til Þuríðar móður sinnar að hún var komin á bak hesti þeim er þau kölluðu Eykjarð og hún hafði heimt húskarl sinn til föruneytis við sig. Hann er eigi nefndur en svo er sagt að hann mun grunnúðigur vera.

Nú mælti Barði: "Þetta horfir til óefnis er hún er á ferð komin og mættum vér þess vel án vera og verður nú að leita ráðs og létta á ofanförina hennar."

Hann heimtir til sín þá Ólaf og Dag, heimamenn sína.

"Nú skuluð þið," segir Barði, "ríða á mót henni og mælið við hana sæmilega og fagurt en gerið sem eg býð, segið að það sé vel er hún er komin í för vora. Biðjið hann vel fylgja henni húskarlinn, og styðjið hana á baki og ríðið svo uns þér komið fram að Faxalæk. Hann fellur úr Vesturhópsvatni og ofan í Víðidalsá. Skeiðgata liggur að læknum norðan og svo frá honum. Og þá skuluð þið spretta gjörðunum hennar. Skal Dagur það gera og láta sem hann gyrði hestinn er þér komið að læknum og reiðið hana af baki svo að hún falli í lækinn ofan og svo þau bæði en hafið með ykkur hestinn."

Nú riðu þeir í mót henni og kvöddu hana vel.

"Og urðuð þið heldur til þess að ríða í mót mér en synir mínir," segir hún, "og sæma mig?"

"Þeir buðu okkur þetta erindi," segja þeir.

Hún segir: "Því em eg í ferðina komin að mig vættir að síður mun fyrir farast nokkur stórræði fyrir því að ei skal skorta til áeggjun fyrir því að þess þarf við."

Þeir láta það mjög munu bæta að hún fari. Ríða nú þar til er þau koma fram að Faxalæk.

Þá mælti Dagur: "Þessi maður er mannvitull er þér fylgir Þuríður. Hann hefir ekki svo vel gyrt hest þinn að það muni duga. Er það skömm mikil að fá slíkt til fylgju við dugandi konur."

"Gyrtu betur þá hestinn en áður er," segir hún, "og fylg mér síðan."

Hann tekur nú og sprettir gjörðunum af hesti kerlingar, rekur þau bæði af baki í Faxalæk, sem þeim var boðið. Þar var Þuríði við öngu meini hætt og gruflar hún af læknum. Þeir ríða nú í brott og höfðu hestinn með sér. Hún fer heim um kveldið og húskarl hennar og ei erindi fegin.

23 kafli

Barði ríður nú og flokkur hans leiðar sinnar þar til er þeir áttu skammt til Borgar. Þá ríða menn að móti þeim nokkurir og var þar Þórarinn goði fóstri Barða og Þorbergur son hans. Þeir ræðast við þegar og takast að orðum fóstrarnir.

"Þó hefir þú þar fóstri," segir Barði, "sverð mikið um kné þér."

"Hefir þú eigi séð mig hafa þetta vopn fyrr, hygginn og glöggþekkinn?" segir Þórarinn. "Svo er og. Ei hefi eg fyrr haft. Nú skulum við skipta vopnum. Skal eg það hafa er þú heldur á."

Og svo gerðu þeir.

Þá spurði Barði hvaðan honum kom.

Hann sagði honum með öllum atburðum hve fór með þeim Lygi-Torfa og hve hann hafði lokkað hann til að sækja vopnið "en Þorbergur son minn hefir annað vopnið og á það Þorbjörn en Þorgautur á þetta er þú hefir. Það þótti mér maklegast að vopn þeirra lægðu ofmetnað þeirra og dramb. Því réð eg þessi ráð og svo hið sama hefndir þú þeirrar svívirðingar þinnar er þeir gerðu til þín og yðarra frænda. Nú vildi eg að þú værir mér ráðhollur, svo mikla stund sem vér leggjum á yðra sæmd."

Nú ríða þeir í tún að Borg til Eyjólfs mágs þeirra bræðra. Þar voru tveir hestar búnir fyrir dyrum er Barði kom í garð og voru á öðrum vistir þeirra bræðra og ætlaðar voru þeim til nests og jarteindu það þau hin nýju slátrin er Barði lét þangað færa. Þær vistir hafði búið Ólöf systir þeirra og Kjannök fóstra hans. Þá stígur Eyjólfur á bak og var albúinn að ríða í tún frá dyrum.

Þá kemur út kona og kallar á Barða og mælti að hann skyldi aftur ríða þangað til dyranna og kveðst eiga mál við hann. Það var Ólöf systir hans. Hann bað þá ríða fyrir en hann kveðst ekki mundu dveljast. Kemur hann að dyrum, spyr hvað hún vill. Hún biður hann stíga af baki og hitta fóstru sína. Hann gerir svo, gengur inn.

Kerlingin æmtir við innar í húsinu en hún var í rekkju sinni.

"Hver fer þar nú?" spyr hún.

Hann svarar: "Barði er hér nú. Hvað viltu mér fóstra?"

"Gakk þú hingað," segir hún. "Vel ertu kominn nú. Sofið hefi eg nú," segir hún, "en vakað hefi eg í nótt að búa vistir yðrar og systir þín. Far þú hingað," segir hún, "og vil eg þreifa um þig."

Barði gerði svo sem hún mælti því að hann unni henni mikið.

Hún tekur til í hvirflinum uppi og þreifar um hann öllu megin, allt á tær niður.

Barði mælti: "Hve kennist þér til og hve ætlar þú vera, þó þreifar þú nú svo vandlega?"

Hún svarar: "Vel þykir mér," sagði hún. "Hvergi þykir mér við hníta svo að eg finni stórum."

Barði var mikill maður og sterkur að afli. Digur var háls hans og spennir hún höndum sínum um háls honum og tekur úr serk sér steinasörvi mikið er hún átti og dregur á háls honum og dregur yfir skyrtuna. Hann hafði tygilhníf á hálsinum og lét hún hann þar vera og bað hann vel fara. Hann ríður nú á braut eftir förunautum sínum.

Hún kallar eftir honum: "Lát vera nú svo búið sem eg hefi um búið og vættir mig að þá mun hlýða."

24 kafli

Nú er hann kemur til liðs síns þá ríða þeir leiðar sinnar. Þórarinn fer langt á leið með þeim og hefir umráð um ferð þeirra. Honum þykir mikið undir að þeim færist vel.

"Gistingarstað hefi eg yður fengið," segir hann, "í Gnúpsdali, er þér skuluð hafa. Njáll heitir búandi er þér skuluð í nótt gista. Svo er sagt að hann sé ekki mikill þegn við aðra menn af fé sínu. Þó hefir hann ærið. Þess vætti eg að við yður taki hann að orðsendingu minni. En nú er sá maður hér kominn er í nótt reið sunnan úr Borgarfirði er eg sendi suður í þessi viku að vita tíðindin í hérað og kann sá mér gerla satt að segja og hefir hann það sagt að Hermundur Illugason mun vera í kaupstefnu öndurða þessa viku og margir aðrir héraðsmenn. Það munuð þér og spurt hafa að þeir bræður, synir Þorgauts, hafa sýslu fyrir höndum í sumar að slá teig þann er heitir Gullteigur. Nú líður fram verkið svo að lokið mun miðvikudag í þessi viku og munu þeir heima vera. Spurt hefi eg það að þeim er títt að ræða Gíslungum þegar nokkuð hark verður og háreysti. Þá mæla þeir: "Mun ei Barði koma?" Gera að því mikið spott og háð við yður til svívirðingar. Nú gerist hér og það sagt með miklum sannindum að það hafa þeir héraðsmenn samráðið, ef nokkur tíðindi verða í héraðinu þau er af manna völdum eru þá skulu allir skyldir til eftir þeim að ríða, síðan er þeir Snorri goði höfðu sofið skammt frá byggðum eftir víg og sín stórvirki, og skal sá útlagður, er eigi verður til þess búinn, þremur mörkum, hver sá er þingfararkaupi á að gegna frá Hafnarfjöllum og til Norðurár sem þeirra þingmenn eru flestir Síðumanna og Flókdæla. Nú ríðið þér annan dag viku frá Njáls og farið tómlega. Hafið náttstaði á heiðinni" - þá fékk hún það nafn að hún var Tvídægra kölluð - "og skuluð koma til vígis þess hvorstveggja er á heiðinni er, þá er þér farið suður, og sjáið hvort svo sé sem eg segi yður. Flói heitir á heiðinni og eru þar vötn stór. Það er í norðanverðum flóanum vatn það er nes liggur í og ei breiðara að ofanverðu en níu menn megi standa jafnfram og deilir norður vatnföllum til héraða vorra úr því vatni. Þangað vísa eg yður til. En annað vígi er í sunnanverðum flóanum er eg vildi síður að þér hefðuð og yður gegnir verr ef þér þurfið til að taka. Þar gengur enn nes fram í vatn. Þar mega standa átján menn jafnfram og deilir suður vatnföll til héraða þeirra úr því vatni. En þér munuð koma suður þriðja dag þann til selja er allir menn eru farnir úr seljum eftir endilöngum Kjarradal og þar eiga allir Síðumenn selfarar og hér til hafa þeir þar dvalist. Nú vættir mig að þar komið þér nær eykt dags. Þá skulu ríða tveir menn af liði yðru ofan í hérað þar og eftir fjalli og svo til brúa og koma eigi til byggða fyrr en fyrir sunnan ána. Þá skuluð þið koma á bæ þann er heitir á Hallvarðsstöðum og spyrja bónda tíðinda og frétta eftir hestum þeim er horfið hafa norðan úr sveitum. Þið skuluð spyrja úr kaupstefnu. Þá munuð þið sjá á Gullteig er þið farið ofan með ánni hvort þar séu menn að slætti sem nú er eftir hermt. Þá skuluð þið ríða upp svo til vaðs og láta búanda ykkur til vaðs vísa, ríða svo til heiðarinnar og upp á heiðina. Þá munuð þið sjá á Gullteig er þið farið með ánni. En miðvikumorgun skaltu fara ofan á brúna, þar er þér sjáið tíðindi um héraðið, og skaltu þá skipta liði þínu í þrjá staði alls þér eruð átján saman. Eftir skal vera hinn nítjándi og gæta hesta yðvarra og skal þar vera Koll-Grís og láta þá vera búna er þér þurfið til að taka. Sex skulu menn vera á brúnni uppi og mun eg ákveðið gera hverjir þar skulu vera eða hví þannig er til skipt. Þeir frændur skulu þar vera, þeir Þorgísl af Meðalheimi og Arngrímur og Eiríkur viðsjá og Þorljótur Gjallandafóstri, Eyjólfur frá Ásmundargnúpi. Því skulu þeir þar sitja að þeir munu þér vera menn stríðastir og torsveigastir er þér komið í héraðið en yður hæfir eigi svo að ei hafið þér stilling við og vit. En miðleiðis skulu sitja aðrir sex, bræður Þóroddur og Þorgísl af Þernumýri, bræðrungar Barða, og sá maður hinn þriðji er kom í stað Halldórs. Þeir skulu og þar vera systursynir þínir, Húnn og Lambkár, Eyjólfur mágur þinn hinn sétti. Þeir munu þér hóti ráðhollari og ei með jafnmiklum geysingi. Fyrir því skulu þeir sitja að þá sjá þeir mannfarar um héraðið. En þér sex skuluð ofan fara, þú og Steinn bróðir þinn og Steingrímur, Ólafur og Dagur og Þórður. Þeir munu þér ráðhollastir og er þeim þó fullliða er á teignum eru fyrir. Nú skuluð þér þegar á braut fara er þér hafið þeim skaða gert fyrir því að ei mun yður eftirförin ljúgast og minni mun stund á lögð um eftirförina ef eigi eru sénir meir en sex menn og mun ei þá mjög fjölmennt eftir ef svo er með farið. Nú skuluð þér undan ríða sem hvatast þar til er þér komið til hins nyrðra vígis á heiðinni fyrir því að þá ber norður alla kviðburði og er yður það mest fullting að svo yrði. En þó grunar mig að ei komir þú því við fyrir þeirra ofstæki er þér fylgja. En nú munum vér skiljast að sinni og finnumst heilir."

25 kafli

Nú kemur Barði að kveldi til Njáls með flokk sinn og stendur Njáll úti og býður þeim gisting öllum ölværlega. Þeir þiggja það, láta lausa hesta sína, setjast á báða bekki. Njáll er úti um kveldið og kona hans og búa vistir gesta sinna en sveinn þeirra er inni ungur og skemmtir þeim. Barði spyr sveininn ef hann hafi brýni nokkuð.

"Eg veit," segir hann, "harðstein er faðir minn á og þori eg eigi að taka."

"Eg mun kaupa að þér," segir Barði, "og fá þér til tygilhníf."

"Já," segir hann sveinninn, "hví mun eg eigi til ráða þá?" Leitar harðsteinsins og finnur og selur Barða.

Barði tekur við harðsteininum og ekur tygilhníf af hálsi sér og þokast þá nokkuð steinasörvið er hún hafði látið á háls honum kerlingin, og þess verður getið síðar. Nú brýna þeir vopn sín. Nú þykist sveinninn hafa vel hnykkt er þeir hafa það sem þeir þurftu. Nú eru þeir þar um nótt og hafa góðan beina. Nú ríða þeir leið sína annan dag viku í góðu veðri og fóru ekki hart. Spyr Barði Eirík viðsjá hvernug hann ætlaði að farast mundi.

Hann svarar:

Blóðs, höfum hlynr of heiði

hræborðs farið norðan,

vér hyggjum nag næra

nítján saman, rítar.

Þó getum hins að, hríðar

hlunntams, munum sunnan,

ár, hyggr skáld til skæru,

skæs, nokkuru færi.

Nú eru þeir þar um nóttina á heiðinni og ríða miðvikudag í Kjarradal og var það nær eykt dags. Og er þeir höfðu áið um stund þá ríða tveir menn ofan í hérað sem til hafði skipað Þórarinn og hittu önga menn á bæjum og fóru fjallveg allt og komu til brúar og nú á Hallvarðsstaði og sáu tíðindi gerva á Gullteig og sáu það að þar voru karlar á teignum og slógu allir í skyrtum og sýndist jafnt eftir því sem sagt var, sýndist að jafnt mundi eftir dagslátta sem sagt var, finna nú búanda og hjöluðu við hann og spurðu tíðinda. Hvorigir kunnu öðrum þar tíðindi að segja og spurðu þeir að hestum þeim er þeir voru á leit komnir og mjög oft höfðu verið farar til gervar. Hann kvaðst aldregi vita hvar þeir voru og bað þá svo klifa ey og ey. Þeir spurðu hvað tíðinda væri í kaupstefnunni eða hve fjölmennt þar væri. Hann kvaðst óglöggt hafa spurt hvað þar er títt, kveðst og öngu máli þykja skipta. Þeir báðu hann vísa sér leið upp með ánni til vaðs. Svo gerir hann. Skiljast þeir. Fóru þeir til fundar við förunauta sína og segja þeim svo búið, sofa af nótt þá.

26 kafli

Nú er nokkuð að segja frá þeim héraðsmönnum er hér koma við þetta mál. Þorbjörn Brúnason stóð upp snemma á Veggjum og biður húskarl sinn standa upp með sér "og skal fara upp til smiðju í dag til Þorgauts og skal smíða þar."

Það var snemma, þegar í sólarupprás. Hann kvaddi þeim dögurðar og var það eigi á kveðið hvað fengið var annars en húsfreyja setti fyrir þá trygil á borðið. Þorbjörn vottar að honum sé eigi vel fengið og rekur meðal herða henni trygilinn. Hún snýst við og verður illa við og mælti við hann hrapallegt og svo hvort við annað "og ber þú það fram," segir hann, "er ekki er í nema blóð eitt og undur er þú sérð eigi missmíði á því."

Hún svarar honum þá stillilega: "Ekki bar eg það fram er ei mættir þú vel neyta og ætla eg ei því verr að þau undur beri fyrir þig að þú sért brátt í helju og víst mun þetta þín furða vera."

Hann kvað vísu:

Eigi mun sú er eigum

auð-Vör að mig dauðan,

fold vill mens í moldu

minn aldr, blá falda.

Ann, en ekki vinna

elds má brík að slíku,

það er óskaplegt, eplis

ölseljan mér Heljar.

Þá hleypur hún á braut og tekur osthleif og kastar fyrir hann. Hún sest í pallinn öðrumegin og grætur.

Þorbjörn kvað vísu aðra:

Óþakkir kann ekkju

Áta mars, þótt gráti,

fákrennandi fannar

fagrstrykvins, mig kykvan,

því að áms litar ímu

ofnauð er, er skal dauðan

hlýra höfgum skúrum

heiðingja mig leiða.

"En þó bregður nú kynlegu við. Undan þykir mér nú gaflhlaðið vera hvorttveggja undan húsinu og á sýnist mér falla ströng eftir húsinu og norðan af heiðinni en mold ein sýnist mér og svo kennist mér ei síður osturinn sjá er eg et."

Og stíga þeir undan borðinu og ganga til hesta sinna og stíga á bak og ríða úr garði.

Þá tekur hann til orða Þorbjörn: "Dreymt hefir mig nú í nótt," segir hann.

Húskarl spyr: "Hvað dreymdi þig?" segir hann.

"Þar þóttist eg vera staddur er eigi þótti öllum einnug og þóttist eg hafa sverð það er eg hefi vanur verið að hafa í hendi mér en nú er ei heima og brotnaði í sundur þegar eg hjó fram. En eg þóttist kveða vísur tvær í svefninum og man eg þær báðar:

Það varð mér, hinn mæra

minn vanda eg brag, randa

hjálm-Fenrir brast hólma

hvítvöndr, í tvau, rítar,

þars á mætu móti,

mótrunnr jöru snóta,

heimþingaðar hanga

hnitu reyr saman dreyra.

Væri betr, að eg bæri

benvönd í gný randa,

hleypir kjóls, og heilan

haus, ókostalausan,

sá er dalreyðar dauða

dýrfitjar skal vitja,

herðigaldr og heldimk

hann, ófáum manni.

Nú nam sá vísur báðar er honum fylgdi, en þeir riðu.

Nú svipast hann um Þorbjörn.

"Já," segir hann, "heima liggja nú smíðarefnin eða ellegar hafa niður fallið. Far þú aftur og leita. Finnur þú á leiðinni þá far þú til smiðju en eg mun ríða fyrir. Nú ef ei finnur þú á leiðinni þá far þú til verks þíns."

Nú skiljast þeir. Finnur húskarl eigi smíðarefni. Þorbjörn ríður nú til Þorgauts frænda síns til smiðju og hittir hann fyrir dagmál dags. Kveðjast þeir og spurðust að tíðindum. Hvorgi kunni öðrum þar tíðindi að segja.

Nú er frá því sagt að þeir synir Þorgauts rísa upp allir og fara að slá á Gullteig og ræddu um það að nú mundi vel vita og nú mundi sleginn verða Gullteigur hinn sama dag, ganga til teigs og lögðu af sér klæði sín og vopn.

Gekk Gísli um teiginn nokkuð svo og sá á er þeir ætluðu að slá og nemur staðar og kvað vísu:

Hér vildu mig, höldar,

kom fress í stað þessum

fálu fúra véla

fjölræks marar sækja.

Hitt segir Ullr, að allir,

oddgaldurs, munit skaldi

hríðar Hlakkar glóða

herðendr trúir verða.

Hann segir draum sinn að honum þótti sem þeir væru þar staddir á Gullteig og kæmu að þeim vargar margir og ættust þar við og var mikið um "og eg þóttist vakna við það er eg hljóp undan heim til bæjarins."

Tóku þeir til verks síns og slógu um stund.

27 kafli

Nú hefir Barði skipað liði sínu í setu sem fóstri hans kenndi honum og áður er sagt og nú segir hann þeim öllum hver fyrirætlun hans er í áhuga. Þá undu þeir við hóti betur og ætluðu að þá mundi fram koma það er fyrir var ætlað og létu sér líka þessa tilskipun að kalla og kváðust þó ætla að litlar mundu atgerðir verða.

Þá var skógur mikill í Hvítársíðu sem þá var víða hér á landi. En þeir sátu fyrir ofan skóginn sex og sáu gerva tíðindi á Gullteig. Barði var í skóginum og snertu eina frá þeim, þar er þeir slógu, og þeir sex saman. Nú hyggur Barði að hve margir menn væru að slættinum. Nú þykist hann eigi vita víst hvort kona er hinn þriðji maðurinn er hvítt er til höfuðsins að sjá "eða mun þar vera Gísli?"

Ganga nú ofan undan skóginum hver eftir öðrum og þótti þeim svo fyrst Þorgautssonum sem einn maður gengi þar.

Og tekur hann til orða Þormóður er síðast sló á teignum: "Menn fara þarna," kvað hann.

"En mér sýnist," segir Gísli, "að maður gangi einn."

En þeir gengu hart og runnu eigi.

"Eigi er það," kveður Ketill brúsi. "Menn eru þar og eigi allfáir" og námu staðar nokkuð og sáu á.

Ketill mælti: "Mun eigi Barði þar vera? Og ei er honum ólíkt og kann eg eigi mann að kenna ef ei er hann og svo var hann búinn í sumar á þingi."

Þeir bræður sáu á, Ketill og Þormóður, en Gísli sló og tók til orða: "Svo látið þér," segir hann, "sem Barði muni koma undan hverri hríslu í allt sumar og hefir hann enn eigi komið."

Þeir Barði höfðu skipað til mönnum áður að tveir skyldu annast einn hvern þeirra. Þeir Barði og Steinn skyldu annast Ketil brúsa. Hann var rammur að afli. Þeir Dagur og Ólafur skyldu ganga í mót Gísla. Þeir Steingrímur og Þórður skyldu ganga í mót Þormóði. Nú snúa þeir að þeim.

Nú mælti Ketill: "Eigi mun við ljúgast að hann Barði er kominn" og vildu þrífa til vopna sinna og engi þeirra fékk náð sínum vopnum.

Nú er þeir sjá hvar komið er þá vilja þeir hlaupa heim til túngarðsins, Ketill og Gísli, og Barði eftir og fjórir hans förunautar. En Þormóður snýr niður til árinnar og þeir eftir honum, Þórður og Steingrímur, og elta hann á ána og grýta hann frá landi. Hann kemst yfir ána og er hann vel fær. Nú koma þeir heim að garðinum bræður. Verður Ketill skjótari og stiklar yfir inn. Og þá er Gísli hleypur á garðinn þá fellur torfa úr garðinum og skriðnar hann. Þá kemur að Barði. Hann varð þeirra skjótastur og höggur til hans með sverðinu Þorgautsnaut og höggur mjög svo af andlitið. Nú þegar snýr hann í mót förunautum sínum og segir þeim að áverki hefði orðið nokkur. Þeir kváðu lítið tilráð orðið mundu og ósnöfurmannlegt. Hann lét þó svo búið þá mundu verða að vera "og skulum nú aftur hverfa."

Hann verður að ráða og er það þó mjög í móti vilja þeirra. Ketill kippir honum Gísla inn af garðinum og kastar honum á bak sér. Ekki sjá þeir að honum yrði mikill þungi að honum. Hann hleypur heim til bæjarins. Þeir Þorgautur voru í smiðju og Þorbjörn og bíður ef húskarl hans kæmi með smíðarefni.

Hann mælti Þorgautur: "Þó er hark mikið. Er eigi Barði kominn?"

Ketill kom inn í smiðjuna í því bili og segir: "Það fann Gísli son þinn að hann er kominn," kastaði honum dauðum fyrir fætur honum.

Barði snýr nú í mót förunautum sínum og kvaðst það ætla að kominn mundi maður fyrir mann. Þeir kváðu þá eigi jafnmenni vera og kváðu lítið að gert þótt einn maður væri drepinn og fara svo langt til. Nú er þeir hittast allir förunautar þá mæltu þeir er efri voru í setunni að víst eigi hefðu þeir farið ef svo skyldi á braut leysast að eigi skyldi meiri hefnd eftir þvílíkan harm sem þeim hafði ger verið, kváðu eigi jafnmenni þá Gísla og Hall og lögðu nú ámæli til við Barða, kváðust ætla ef þeir yrðu við staddir að meira mundi að gert, fara nú til hesta sinna og kváðust vilja hafa dögurð. Barði bað ekki hirða um dögurð.

Þeir kváðust ei vilja fasta "og það kunnum vér eigi ætla hve þér mundi undan ef þú hefðir nokkuð það gert er frami væri að."

Barði kvaðst ekki hirða hvað þeir ræddu.

Nú matast þeir.

28 kafli

Nú talast þeir við heima, Þorgautur og Þorbjörn og Ketill. Ræðir Þorgautur að mikið er að orðið "og mér er nær höggvið en þó sýnist mér sem ei muni minna við hlíta og vil eg að hvergi sé eftir riðið."

Þeir segja báðir að það skyldi aldregi verða. Þær heyrðu konur hvað mælt var og sendi Ketill þær út á Fróðastaði og Síðumúla að segja tíðindin og þá mætti hver öðrum segja þaðan frá svo að orð kæmist í Þverárhlíð og um Norðurárdal að eftir þeim sé riðið er verkið hafa unnið og firri sig svo sektum og fjárlátum.

Þeir fara og taka hesta sína og ríða til Hávafells til Árna Þorgautssonar. Hann átti þar mágum að fagna. Var þar kominn Þórarinn Þverhlíðingur faðir Ástríðar konu hans. Þaðan ríða þeir fimm saman.

Það er nú að segja frá Þormóði. Hann fer nú upp fyrir sunnan ána þar til er hann kemur í Ás. Þá var fábyggt fyrir sunnan ána. Þar var mannfátt heima og voru menn farnir á Völlu en húskarlar á verki. Eiður sat að tafli og synir hans tveir. Annar þeirra hét Illugi en annar Eysteinn. Þormóður segir þau tíðindi sem orðin voru. Þá var brú á ánni uppi hjá Bjarnafossi og lengi síðan. Eiður fýsti ekki fararinnar en synir hans grípa til vopna sinna og ferðast. Fara þeir bræður til Þorgísl á Höggvandastöðum. Þá var og heim kominn Eyjólfur son hans, hafði þá og út komið um sumarið. Þormóður fer upp á Hallkelsstaði og kemur þar og segir tíðindin. Tindur var heima einn karla en komnir voru menn til smiðju. Sú kona bjó þar hið næsta er Þorfinna hét. Hún var kölluð skáldkona. Hún bjó á Þorvarðsstöðum. Hún átti sér son er hét Eyjólfur og bróður er hét Tanni er kallaður var hinn handrammi og ekki var hann sem mennskir menn að afli og svo hvortveggi þeirra og Eyjólfur systurson hans og voru fullhugar að áræði. Þeir voru komnir til smiðju til Tinds. En því var eigi komið á Gilsbakka að Hermundur var til skips riðinn og húskarlar hans. Þeir Tindur verða fjórir, Þormóður hinn fimmti. En það var síð dags. Synir Eiðs koma til Þorgils höggvanda. Þeir bregða við skjótt og fara þaðan sex saman. Þar var Eyjólfur son hans í för og fjórir menn aðrir.

29 kafli

Nú er frá því að segja hvað þeir Barði sjá tíðinda. Hann ríður fyrst þeirra og nokkuru harðast svo að hlið var á millum þeirra en þeir riðu heldur tómlega eftir og kváðu hann furðu hræddan vera. Nú sjá þeir mannaför eftir sér og sjá flokk eigi miklugi minna en þeir höfðu sjálfir og glöddust þeir förunautar Barða og hyggja gott til að þá mundi verða nokkuð sögulegt í um ferðina.

Þá mælti Barði: "Förum undan enn of hríð og eigi að minni von að það kostgæfi eftirförina."

Þá kvað Eiríkur viðsjá vísu:

Flykkjast frægir rekkar.

Fús er herr til snerru.

Þjóð tekr hart á heiði

herkunn dragast sunnan.

Fara biðr hvergi herja

harðráðr fyrir Barði

geira hreggs frá glyggvi

gunnnárunga sunnan.

"Eigi segir þú nú satt," segir Barði. "Það mælti eg að hver fari sem má þar til er vér komum til vígis þess er fóstri minn mælti að vér skyldum neyta í nyrðra flóanum."

En því gat Barði eigi á leið komið og kváðust þeir þá fulleltir er þeir komu til syðra vígis í flóanum. Sér Barði það að nú mun svo verða að vera og sneri nú í móti þeim. Kveðst hann munu eigi svo miklu fúsari undan að ríða heldur en þeir og skulu þeir þess samkvæðis gjalda. "Þó má nú eigi letja yður að eigi skulum vér fyrr renna í kveld en yður þykir mál og þér skuluð það mæla fyrr en eg að bíða eigi eða hvorigir ella."

Nú þykir þeim allvænt um. Hross sín létu þeir í nesið fram frá sér og settu þar til Koll-Grís að gæta. Hann var ekki styrjaldarmaður og af æskuskeiði var hann.

Nú kvað Eiríkur vísu:

Fast höldum vér foldu.

Fram þoki herr að snerru.

Látum randa völ reyndan

ryðjendr í ben snyðja.

Skal eg, þó að sagt sé sunnan

sverðél taki að herða,

rjóðum hart á heiði

hjálmríð, úr stað bíða.

Á þeim degi var og farið eftir Hermundi á Völlu og var hann heim á för og hitta sendimenn hann á leið upp frá Þingsnesi. Hann lét og fyrir lið allan farangur sinn og biður hvern mann til farar með sér er komast mætti og biður sér liðs og ríður eftir þeim.

30 kafli

Nú hittast þeir sunnanmennirnir og Barði. Stíga þeir af baki. Hafa þeir Barði fylkt liði sínu um þvert nesið.

"Gangi nú engi fram úr þessum sporum," segir Barði, "því að mig grunar að fleiri manna mun von."

Það stóðst á, nesið þvert og fylking þeirra átján manna, og var einumegin að þeim gengt "og meiri von að þér náið að reyna vopn," segir Barði, "og væri betra að hafa hið nyrðra vígið og ei mundi það til ámælis lagt, þótt svo gerðum vér, en betra til eftirmáls og ekki skulum vér enn ótta hér við gjalda."

Þeir stóðu með brugðnum vopnum. Á aðra hönd Barða stóð Þorbergur og á aðra hlið Gefnar-Oddur, þá bræður Barða út í frá.

Nú ráða þeir eigi svo skjótt á sunnanmenn sem þeir hugðu og meira lið var fyrir en þeir vættu. Þar var höfðingi Þorgautur, Þorbjörn og Ketill.

Þá mælti Þorgautur: "Ráðlegra er að bíða meira liðs. Hafa þeir haft ráð mikið er þeir komu fáir í hérað."

Nú ganga þeir ei að og er það sáu norðanmenn þá ætla þeir sitt ráð.

Mælir Þorbergur: "Hvort er Brúsi í liðinu?"

Hann segir að hann var þar.

"Hvort kennir þú sverð þetta er eg held hér á?"

Hann kvaðst eigi vita þess vonir "eða hver ertu?"

"Eg heiti Þorbergur en þetta sverð seldi mér Lygi-Torfi frændi þinn og hér af skaltu mart högg þola í dag að því er eg vildi. Eða hví sækið þér nú eigi að? Þér hafið þrásamlega eftir sótt í dag að því er mér sýnist, riðið og runnið."

Hann segir: "Vera kann að það sé þar vopn er eg á en áður vér skiljumst í dag þá muntu lítt oss frýja þurfa."

Þá mælti Þorbergur: "Ef þú ert drengur fullur hvað skaltu þá bíða meira ofureflis?"

Þá tekur Barði til orða: "Hvað er tíðinda að segja úr héraðinu?"

"Þau tíðindi eru er þér munu góð þykja, víg Gísla bróður míns."

Hann segir: "Ekki löstum vér það og eigi þóttist eg allgrunsamlega unnið hafa. Eða hversu er, þykist þú Ketill eða þið feðgar einskis eiga að hefna oss? Mig minnir að það var fyrir skömmu er þú komst heim Ketill færandi hendi föður þínum með bakbyrði. Nú ef þú manst eigi þá mun hér vera votturinn, þetta sama sverð. Er enn eigi heilinn þornaður á" - og skekur að honum sverðið - "þykist þú Ketill einskis eiga að hefna? Og sjá hérna að eigi er heilinn þornaður á" og skekur þá enn að honum sverðið.

Þetta fá þeir eigi staðist og hlaupa nú að þeim. Þorbjörn hleypur að Barða og höggur á hálsinn og brast við furðu hátt og kom á stein þann í sörvinu er þokast hafði þá er hann tók hnífinn og gaf syni Njáls og steinninn brast í sundur og dreyrði tveim megin bandsins en það beit eigi.

Þá mælti Þorbjörn: "Tröll, er þig bíta eigi járn."

Nú lýstur þeim saman og eftir högg þetta hið mikla stýrir hann þegar í mót Þóroddi og eigast þeir við. Ketill gengur í mót Barða, Þorgautur og Þorbergur. Þar skortir eigi högg stór og áeggjun. Sunnanmenn höfðu lið minna og ótraustara. Nú er fyrst að segja viðskipti þeirra Barða og Ketils. Ketill var manna sterkastur og ofurhugi. Eigast við lengi. Kemur þar að Barði slæmir á síðu honum og fellur Ketill. Og nú hleypur Barði að Þorgauti og veitir honum banasár og hnigu þeir þar báðir fyrir því vopni er þeir áttu sjálfir. Nú er að segja frá Þorbirni og Þóroddi. Þeir gangast að í öðrum stað og skortir þar ei högg stór er hvorgi sparði við annan og voru flest ærið stór. Og eitt högg höggur Þóroddur til Þorbjarnar og af fótinn í ristarliðnum og ei berst hann að síður og leggur fram sverðinu í kvið Þóroddi og fellur hann og liggja úti iðrin. Þorbjörn sér nú frændur sína, hirðir nú ei um líf með örkumlum þessum. Nú snúa þeir fram synir Guðbrands í móti Þorbirni.

Hann mælti: "Leitið ykkur annars færis. Ekki hafði það ungmennis verið fyrr meir að keppast við oss."

Hleypur hann síðan að Barða og berst við hann.

Þá mælti Barði: "Þú þykir mér tröll er þú berst svo, að af þér er fóturinn. Er þetta sannara en það er þú mæltir við mig."

Þá segir Þorbjörn: "Eigi er það tröllskapur að maður þoli sár og sé eigi svo blautur að eigi verjist hann meðan hann má. Má það virða til drengskapar og væri það svo að virða en trylla menn eigi alls þú ert góður drengur kallaður. Og það skuluð þér til eiga að segja áður en eg hnígi í gras að eg nennti að vísu að neyta vopna."

Þar féll hann fyrir Barða og fékk gott orð. Nú skortir eigi sókn og sest þó með því að sunnanmenn láta undan.

Og það er sagt að maður hét Þorljótur, kappi mikill. Hann átti heima á Veggjum. Sumir segja hann frá Sleggjulæk. Hann barðist við Eirík viðsjá og áður þeir berðust kvað Eiríkur vísu:

Hlotið höfum, rjóðr, af reiði

randir, þuðra branda,

berum ei vægð að vígi

Veggbergr, saman leggja.

Mjög hef eg heyrt að hjarta

hug þínum við brugðið.

Nú skulum, foldar fjötra

fúrleynir, það reyna.

Þeir eigast við lengi og það segja menn að varlega sjái hraustari menn, hvortveggi manna mestur og sterkastur, vopnfærir vel og ofurhugar. Nú höggur Eiríkur til Þorljóts með sverði og brestur í sundur sverðið. Hann þrífur blóðrefilinn og höggur til hans og veitir honum mikið sár og hann fellur.

31 kafli

Nú er á hvíld nokkur og nú er sén reið manna sex. Þar var Þorgísl höggvandi og Eyjólfur son hans og synir Eiðs. Sjá nú vanrétti sinna manna að mjög hefir á vegist þeirra hlut og una nú illa við. Synir Guðbrands verða varir við að Eyjólfur er þar, biðja Barða veita sér að þeir nái hans lífi og hefna sín. En það hafði verið er þeir voru austur að hann hafði hrundið þeim úr loftriði nokkuru og í saurpytt ofan og höfðu þeir farið hneisulega, vilja nú hefna og hafa af því gert förina að upphafi með Barða, ef þeir næðu honum.

Nú segir Barði: "Þið eruð vaskir menn og mikils verðir og mikið tjón ef þið látist. Nú skulum vér enn við leita að yðvar vilji gangi fram. En biðja vil eg að þið gangið eigi úr fylkingu."

Þeir fá eigi stillt sig og hlaupa í mót honum í móinn á braut og berjast. Eyjólfur var hinn mesti kappi og frágerðamaður sem faðir hans, fullger að afli, reynt sig mjög í framgöngu. Og er atgangur þeirra langur og harður og lýkst með því að hvorirtveggju eru svo þráir og kappsamir og miklir fyrir sér að því liggja þeir allir dauðir að skilnaði. Synir Eiðs berjast og fast og ganga vel fram og hermannlega, Steinn og Steingrímur þar í móti. Og nú berjast þeir allir og gera mikið af sér og þar falla þeir synir Eiðs og var Barði nær staddur er þeir létu sitt líf. Þorgísl höggvandi hlífist ekki við, þykir sér mikill skaði ger í dauða sonar síns. Hann var mestur fyrir sér og betur vopnfær en aðrir menn, höggur á tvær hendur og þykir eigi betra líf en hel. Þeir eru mest til þess nefndir að framast hafi verið, Þorgísl og Eiríkur og Þóroddur. Þorgísl hlífir sér ekki og eigi var sá maður í því héraði er öllum þótti meira brautargengi að en honum. Þorgísl ræðst honum í móti, bróðir Þórodds, og eigast við lengi og ei skortir harðfengi hvorntveggja.

Og eitt högg höggur Þorgísl til hans úr brúnunum ofan nefið og mælti: "Nú fékkst þú gott mark og þér hæfilegt. Slíkt skylduð þér fleiri hafa."

Þá mælti Þorgísl: "Eigi er markið gott en meiri von að þori eg að bera hreystilega og lítt þurfið þér enn að hælast" og höggur til hans svo að hann fellur og er óvígur.

Nú verður á hvíld nokkur og binda menn sár sín. Nú er sén reið manna fjögurra. Þar var Tindur og Tanni, Eyjólfur og Þormóður. Og er þeir koma að eggja þeir mjög, voru sjálfir miklir ofurkappsmenn. Tekst nú bardagi hið þriðja sinn. Tanni ræðst í móti Barða. Tekst þar víg afburða fræknlegt. Tanni höggur títt og er enn sem fyrr að Barði er torsóttur og lýkur með því þeirra máli að Tanni fellur fyrir Barða. Eyjólfur gengur í móti Oddi og berjast þeir og er þar hvortveggi hinn besti drengur. Og nú höggur Eyjólfur til Odds og kemur á kinnina og í hvoftinn og verður það mikið sár.

Þá mælti Eyjólfur: "Vera kann að ekkjunni þyki versna að kyssa þig."

Hann segir: "Lengi hefir eigi gott verið en þó mun nú mikið um hafa spillst og þó kann vera að eigi segir þú þetta þinni vinkonu" og höggur til hans svo að hann fékk mikið sár.

Var hér sem fyrr að Barði var nær staddur og veitir honum skaða.

Þormóður Þorgautsson var og hraustur maður og gekk vel fram. Eyjólfur frá Borg réðst honum í mót og verður mjög sár. Og þótt þessir séu mest nefndir af Norðlendingum þá gengu þó allir vel og hraustlega fram fyrir því að þeir höfðu einvala lið. Og er þessir voru fallnir þá létti bardaganum.

Nú mælti Þorbergur að þeir skyldu undan leita og voru átta menn sunnan fallnir en þrír norðan. Nú spyr Barði Þórodd ef hann mundi fara mega með þeim. Hann lætur þess eigi von og biður þá undan ríða. Barði sér sárið. Nú sjá þeir liðið er sunnan fer sem í skóg sæi. Spyr Barði ef þeir vilji bíða. Þeir kváðust ríða vilja og svo gera þeir, ríða nú sextán saman og flestir sárir.

32 kafli

Nú er að segja frá Illuga. Hann kemur á vettvanginn og sér þar ný tíðindi og þó mikil. Þá kvað Tindur vísu er Illugi spurði hve margir þeir hefðu verið:

Háið hefir askr við aska

átján lagar mána

veðr böð-Gerðar virða

við hálfan tug þriðja.

En að eggja sennu

álmsvells boðar fellu.

Þá hygg eg lógstafi lágu

lauðhyrs níu dauða.

Eiðs eru erfimeiðar

allbrátt í styr fallnir

og tveir að gný geira

Guðbrands synir handan.

Slíks bíðum vér síðan

sverðs, nema hefndir verði,

traust lið mitt, hið mesta,

móts aldregi bótir,

aldregi bótir.

**

Nú kemur Tindur þar sem Þóroddur lá og sér að hann var lífs og höggur hann þegar af honum höfuðið. Og er Illugi veit þetta þá mælti hann að hann hefir haft illt erindi, drepið þann mann er einn var vænstur augnvottur um þetta eina í voru máli ef þeir hefðu hlaupið frá manninum en þeir mættu grið gefa honum, biður hann hafa mikla óþökk fyrir.

Nú ríður Illugi eftir þeim við hundrað manna og nú lýstur á mjörkva miklum og verða nú aftur að hverfa, lætur suður færa þeirra manna lík er fallnir voru. Mart var sárt orðið lið þeirra. Þeir voru mjög sárir Gíslungar, Árni og Fróði, Þormóður og Þórarinn. Nú ætlar Illugi menn til að gæta líkanna og vita ef þeir yrðu svo veiddir ef þeir gerðu eftir mönnum sínum og voru sex tigir manna eftir og gerðu tjald og sátu of hríð.

Barði kemur til Njáls og þaðan ríður hann út til Lækjamóts og hafa sama búnað sinn. Þeir hittast nú fóstrarnir og segir hann Þórarni tíðindin í hljóði og svo að þeir munu fara eftir líkum. Þórarinn segir að ei skulu þeir svo fá veitt þá og hríðir og illviðri skulu þá fyrr á braut keyra, "þeim varða við lög ef þeir búa ei um líkin," og fer þetta sem Þórarinn gat að þeim leiðist á fjöllum úti og fara heim.

Nú fer Barði í Ásbjarnarnes. Og er þeir ríða út eftir héraði ætla menn að konur ríði. Nú lifa fjórar vikur sumars. Ekki koma upp tíðindin fyrir alþýðu og skeyttu þeir mönnum ekki forvitni.

Nú ríður hann út til sáttarfundar er nefndur var áður hann fór heiman við þá höfðingjana að Klifum og fór með honum Guðrún kona hans því að hún skal hitta föður sinn og vita hvað hann vilji til leggja við Barða. Hún kemur á hans fund og rekur erindi sitt og tók hann því þungt. Þeir Barði ríða með sama búnaði og vissu menn ei tíðindi í för þeirra. Þeir Höskuldur biðu lengi á mótstefnunni og þótti örvænt að Barði mundi koma. Þeir voru fjölmennir og ætla nú á braut að ríða. Biður Höskuldur að sjá. Kemur Þórður eftir þeim, segir kynlega við bregða, segir konur þangað ríða. Höskuldur segir að eigi muni það vera. Þá gengur hann upp og sér reið manna. Barði og menn hans komu. Bíður Þórður. Höskuldur gengur í móti þeim og Eilífur senn og heilsa Barða. Þeir taka hjal.

Segir Barði: "Muntu um málaferli þessi einn ráða?"

Höskuldur svarar: "Eg mun gera og þó ekki fé þér á hendur en eg mun sæma þingmann minn. En fyrir það Barði að þú hafðir hóf við munum vér til leggja við þig til tveggja vætta hvals. Eða hvað ætlar þú þína meðferð?"

Barði segir: "Setu ætlum vér að hafa í Ásbjarnarnesi með vorum mönnum og þeim er við fást."

Barði þakkar honum sitt tillag ... gengur hann heim en þeir Barði ríða og segja nú tíðindin fyrir alþýðu. Nú stíga þeir á bak hestum sínum, Þórður frá Breiðavaði og Þorvaldur, ríða eftir þeim og heilsa.

"Barði," mælti Þórður, "ekki þykist þú laun mín þurfa er þú kvaddir mig eigi til ferðar með þér."

Hann segir: "Ekki þóttist eg alls til skyldur og enn máttu oss að miklu haldi koma."

"Oxa vil eg gefa þér og sauð gamlan."

Þorvaldur gefur tólf geldinga og skiljast góðir vinir.

Nú kemur Barði síðla til Víðidals til Bjarnar og heilsar hann honum og bauð eigi löð. Síðan talar Barði við Guðrúnu konu sína. Hún kveðst alla vega eftir hafa leitað og segir Björn vilja honum ekki gott gera sakar Guðrúnar.

**

"Björn," segir hann, "hvað viltu leggja til í sláturin við oss ef vér aukum nokkuð hjón vor?"

Björn mælti: "Ekki mun eg til leggja því að eg em einkis um skyldur."

Nú eiga menn hlut í við Björn og fékkst ekki gott af honum.

Barði mælti: "Hvorigir munu þá vel hafa og munu þeir gjalda er ófallið er. En þann hlut skal gera er þér er óvirðulegastur."

Nefnir Barði sér þá votta og segir skilið við Guðrúnu dóttur hans "og finn eg það til saka," segir Barði, "að þú ert miklu meiri níðingur en duganda manni sami að eiga þig að mág og muntu hvorki ná af mér mund né heimanfylgju."

33 kafli

Nú heyra þeir gný mikinn að menn ríða margir til árinnar. Var þar kominn Þorgils Arason norðan um land frá brúðhlaupi sínu og Snorri goði með honum og riðu saman átta tigir manna.

Þá mælti Barði: "Tökum ofan búnað vorn og ríðum í flokkinn og aldrei meir en einn senn og munu þeir ekki í ráða er myrkt er."

Ríður Barði að Snorra goða og hefir grímu á höfði sér og hjalar við hann á vaðinu og segir honum tíðindin. Nú ríða þeir af ánni.

Þá mælti Snorri: "Þorgils," segir hann, "hér viljum vér æja og eiga dvöl og hjalast við áður vér skipum oss á gistingar."

Þeir Barði ríða hjá flokkinum og ráða menn ekki í það. Þorgils ætlar um kveldið á Breiðabólstað.

Og er þeir höfðu niður sest þá mælti Snorri: "Það er mér sagt Þorgils," segir hann, "að engi maður mæli jafn vel fyrir griðum sem þú og önnur lögskil."

"Lítils er um það vert," segir Þorgils.

"Nei," segir Snorri, "mikið mun til haft er einmælt er um."

Þorgils segir: "Eigi er frá haft að eg mæli betur fyrir griðum en aðrir menn og má þó lögfullt vera."

Snorri mælti: "Það vil eg að þú látir mig heyra."

Hann segir: "Hver þörf er þess? Eru hér nokkurir missáttir?"

Hann kveðst aldregi það vita "en aldregi er því misráðið og ger sem eg vil og skeyt mér forvitni."

Þorgils segir að svo skal vera.

Hann tók þá til máls: "Það er upphaf griðamála vorra að guð sé við oss alla sáttur. Vér skulum og vera menn sáttir vor í millum og samværir að öldri og að áti, á þingi og á þjóðstefnu, að kirkna sókn og í konungs húsi og hvervetna þar er manna fundir verða. Þá skulum vér svo sáttir sem aldrei hafi fjandskapur vor í millum verið. Vér skulum deila kníf og kjötstykki og alla hluti vor í milli sem frændur en eigi fjándur. Ef sakar gerast héðan af á milli vor, þær skal fé bæta en eigi flein rjóða. En sá vor er gengur á gervar sættir eða vegur á veittar tryggðir þá skal hann svo víða vargrækur og rekinn sem menn víðast varga reka, kristnir menn kirkjur sækja, heiðnir menn hof blóta, eldar upp brenna, jörð grær, mögur móður kallar, skip skríður, skildir blika, sólskin snæ lægir, Finnur skríður, fura vex, valur flýgur vorlangan dag standi honum beinn byr undir báða vængi, himinn hverfur, heimur er byggður, vindur vex, veitir vatn til sjóvar og karlar korni sá. Hann skal firrast kirkjur og kristna menn, guðs hús og guma, heim hvern nema helvíti. Tekur hver vor tryggðir við annan fyrir sig og sinn erfingja, alinn og óborinn, getinn og ógetinn, nefndan og ónefndan, en hver veitir í mót tryggðir og ævintryggðir, mætar tryggðir og megintryggðir þær er æ skulu haldast meðan moldir og menn lifa. Nú erum vér sáttir og sammála hvar sem vér finnumst á landi eða á legi, skipi eða á skíði, í hafi eða á hestbaki, árar að miðla og ausskotu, þóftu og þilju, ef þarfar gerast, jafnsáttur hver við annan sem sonur við föður eða faðir við son í samförum öllum. Höfum nú lófatak að tryggðamálum og höldum vel tryggðir að vilja Krists og að vitni allra manna þeirra er nú heyrðu tryggðamál. Hafi sá guðs hylli er heldur tryggðir en sá gremi guðs er rýfur réttar tryggðir en hylli sá er heldur. Höfum heilir sæst en guð sé við alla sáttur."

34 kafli

Og er Þorgils hafði lokið að mæla fyrir griðum þá mælti Snorri: "Haf þökk fyrir vinur. Stórvel er mælt og það sýnt, sá er á bak gengur er að vísu griðníðingur og sé hann við staddur." Nú segir Snorri tíðindin, þau sem orðin voru, og það að þeir Barði voru þar komnir í flokk þeirra Þorgils.

Þar voru margir vinir sunnanmanna og náfrændur. Þorgils hafði og átt fyrr Grímu Hallkelsdóttur, systur Illuga hins svarta.

Þá mælti Þorgils: "Vel hefðum vér mátt missa þín, Snorri, nú að sinni."

Hann svarar: "Eigi er það góði vinur. Ærin eru nú orðin vandræði með mönnum þótt hér nemi staðar."

Þorgils vill nú eigi ganga á grið þessi er hann hefir sjálfur fyrir mælt og skiljast menn nú.

Ríður Snorri frá með tuttugu menn og Barði með honum og hans menn til Lækjamóts og tekur Þórarinn vel við þeim og eru nú kátir, ráða nú ráðum sínum að . . .


[. . .]

**

35 kafli

Nú er að segja af sonum Gils og þeim frændum að þeir una illa við ... miklu látið hafa og feng ... og koma til Hermundar á Gilsbakka löngum því að traust allt áttu þeir undir Illuga ... einn til ... ðir ... Barða norðan til Hávafells ... vald að ... g ... dar ... sér ... norð ... ðr ... orð ... da ... og bi ... skil ... H ... í ... vera ... nst ... ðia ... fio ... st má við einn eld h ... io ... hann ... s ... um nótt að finna menn og segir að hann vill ganga til Lögbergs miðvikudag í mitt þing og vill þá láta fjölmenna sig. Engi voru þá önnur stór mál á þingi og um þetta var mönnum tíðhjalað hve lúkast mundu mál þessi og mikið rætt um Barða.

Barði fer við níu hundruð manna til Lögbergs miðvikudag í mitt þing og nú er þar eru komnir höfðingjar þá fékkst brátt hljóð og var eigi svo málugt sem fjölmennið var mikið. Það er sagt að Barði tekur til máls.

36 kafli

Á þá leið segir hann að "vera má svo að menn virði þann veg að mér leiðist í seinna lagi að mæla hér að Lögbergi. Eigi er það fyrir þá sök að eg sé málsnjallur maður heldur ber mér til handa mikinn vanda oft af málum. Nú vættir mig að flestum mönnum sé kunnigt hversu vor viðskipti hafa farið og þeirra manna er oss hafa í mót staðið. Þykjumst vér hafa haft við langa þolinmæði, þá harma er oss voru gervir, og fengum þar í mót spott og háð þá er oss var andstefnt þá er vér beiddum bóta fyrir frændur vora og þar með óþokka af frændum og tengdamönnum og þar í frá út öllum jafnsaman er vér vorum eigi svo bráðir í hefndum. Og er vér áttum öngra yfirbóta að vænta þá réðum vér til hefnda nokkuru meir með kappi en forsjá að ráðast með ófriði í önnur héruð með fá menn. Og nú kom svo að vér fengum þar meira hlut og fór eftir málefnum. Nú má vera að þeir þykist nokkuð við oss eiga að ræða er fyrr tóku leið af voru máli. Nú viljum vér annars háttar svör veita en þeir gerðu við oss, bjóðum á vitra manna dóm og góðgjarnra. Viljum vér svo til lykta færa vort mál að leggja þetta fyrir vora hönd í þann dóm er vænst er að best megi haldast og sjatna mætti ófriðurinn."

37 kafli

Þá svaraði Tindur: "Fjölmennari ert þú nú en hjá Dofansfjöllum. Þykist þú nú eiga meira traust en þá hafðir þú aðra fyrir þér."

Barði svarar: "Þess minnir mig að þú mundir þá koma í síðasta lagi til þess fundar er vér hittumst og ganga eigi vel fram."

Síðan bregður Barði sverði er hann hafði í hendi.

"Þetta munt þú kenna er þér frændur hafið átt og oft hefir gjarnan verið til lagst og er það ókynlegt og skörð eru nú mörg í er brotnaði ...


[. . .]


... hjöltum laust eg þig fyrir því að mér þótti ekki annað að þér geranda."

**

Þá stendur upp einn gamall maður og var þar Eiður Skeggjason og mælti: "Kunnum vér mikla óþökk að menn skattyrðist hér hvort er það gera vorir menn eða aðrir. Til einkis kemur það góðs en oft gerist illt af því. Skyldu menn það mæla hér að til sátta væri. Ætlum vér að eigi muni aðrir meir eiga eftir sínum hlut að sjá eða öðrum muni stórugi meiri harma leitað en mér. Sýnist oss þó það ráð að sættast. Munum vér því eigi vorkynna öðrum þó að hér skattyrðist. Er það og vænst til að illa gefist sem fyrr að velja mönnum hneisuleg orð."

Hann fékk góðan róm að sínu máli. Er nú leitað hverjir vænstir séu um sættir að leita. Snorri er til nefndur að mest leitaði um sættir. Hann var þá mjög hniginn. Þorgils var annar maður, vinur Snorra. Þeir áttu systur tvær og ræddu svo hvorirtveggju að slegið mundi í gerð og í mannjöfnuð en menn höfðu sárt haldið frændum sínum.

Kunnum vér nú eigi annað segja en til mannjafnaðar voru menn lagðir er fallnir voru og var Snorri tekinn til gerðar af hendi Barða og Guðmundur Eyjólfsson, Þorgils Arason og Illugi af hendi sunnanmanna, ræddu nú þetta sín á milli hvað vænlegast væri til sætta. Nú sýndist það að menn skal leggja til mannjafnaðar, synir Eiðs og synir Guðbrands en Þóroddur Hermundarson og Þorbjörn. Þeir voru jafnir. Borgfirðingum þótti freklega horfa við Hall Guðmundarson og hurfu frá og rufu sættir er þeir vissu áhuga Barða.

En frá málalokum er að segja að synir Þorgauts, Ketill og Gísli, voru jafnir við Hall Guðmundarson en alls fórust níu menn sunnan. Þá eru fjórir norðan við fimm Gíslunga fyrir því að kynsmunur var mikill og létu frændur Barða sér eigi annað líka. En þá var rætt við hvoratveggju hvað þá var vænst. Þá voru fjórir óbættir sunnanmenn, Þorgils og Eyjólfur son hans, Tanni hinn handrammi og Eyjólfur systurson hans.

En Barði sagði að hann var engi auðmaður né þeir bræður eða frændur þeirra "og eigi munum vér biðja oss fjár til bóta."

Snorri svarar: "Eigi mun hér þó hvorki koma fé né mannsektir."

Barði svarar að hann vill eigi því neita að menn færu utan og ættu þó útkvæmt og færu því fleiri "og er sá einn er eigi er fær. Skal fé fyrir hann gjalda en þó kann vera að þér þykist nokkuð saknæmt við hann eiga. Grís félagi vor mun ekki vera sakbitinn. Hesthöfði er býr þar er nú heitir að Stað í Skagafirði, hann er frændi hans. Hann tók með honum."

Það komst á leið að sættir verða að því og kom það helst saman með þeim að þeir færu utan og þykir það helst nokkur nafnbót vera alls Barði var eigi bitur á fébætur. Væntu þeir að heldur mundi sjatna ófriðurinn og þótti sér það eigi minni sæmd að þeir væru utan og þótti vitrum mönnum þá líklegast til að sjatna mundi þeirra ofsi, svo mikill sem var, að séu eigi fyrst samlendir. Fjórtán menn skyldu utan fara, þeir sem verið höfðu að Heiðarvígi, og vera utan þrjá vetur og eiga útkvæmt hið þriðja sumar en ekki skyldi fé til farningar þeim og var sæst á málin fyrir dóma. Og sú var virðing á að Barði þótti haldið hafa fullan hlut og þeir er honum veittu, í svo óvænt efni sem komið var um hríð.

38 kafli

Nú sendir Barði menn heim í hérað. Þeir höfðu selt land sitt af hendi og bú ef þessar yrðu málalyktir er áður var eigi ráðið það. Sá maður hét Þóroddur og kallaður kergarður, ekki vinsæll. Hann skyldi hafa þrjá vetur. Hann var frændi þeirra Guðmundarsona, auðigur að fé. Var nú ráðið að kalla kaup þeirra.

Nú kemur skip af hafi í Blönduós er átti Halldór fóstbróðir Barða. Nú koma menn heim af þingi. Og er Halldór spyr að Barði skal utan lætur hann bera farminn af skipinu og flyst upp í Hópið fyrir hús Barða. Verður þar fagnafundur.

"Frændi," segir Halldór, "þú hefir vel í höndum við mig, veitt mér oft mikið, styggst og ekki við er eg fór eigi. Nú heit eg þér nokkuru tillagi. Skalt þú nú það heyra. Skip þetta vil eg gefa þér með rá og reiði."

Barði þakkar honum, þykir hann stórmannlega gert hafa. Býr hann nú þetta skip og er með honum hálfur þriðji tugur manna, verða heldur síðbúnir, láta í haf og eru ellefu dægur úti. Verður á þá leið að þeir brjóta skipið norður við Siglunes og týna þeir miklu. Menn haldast.

Guðmundur gamli var riðinn út á Galmarsströnd og spyr tíðindin og hvatar heim.

Og um kveldið mælti Eyjólfur son hans: "Vera má nú að Barði sé fyrir handan er héðan of sér."

Sögðu margir að það var eigi ólíklegt.

"Hversu mundir þú hátta," segir hann Eyjólfur, "ef hann væri afturreka orðinn?"

Hann svarar: "Hvað sýnist þér ráð?"

Hann mælti: "Bjóða þeim öllum heim til vistar, það væri þínslegt."

Guðmundur svarar: "Mikið er þér í hug og eigi veit eg að það sé óráðlegt."

Hann svarar Eyjólfur: "Mæl manna heilastur. Eg kann segja þér að þeir Barði eru afturreka orðnir og brotið í spón við Siglunes en týnt mestum hlut fjárins. Mun þér að þessu verða virðing" og tekur fyrir munn honum.

Guðmundi þykir eigi enn betur og lætur hann ráða.

39 kafli

Eyjólfur gerir ferð sína og hefir hálfan þriðja tug hesta í mót þeim og hittir þá á ströndinni. Eyjólfur kveður þá vel og biður þá fara heim með sér að ráði föður síns. Þeir gera svo, skipa þar annan bekk um veturinn og er Guðmundur reifur við þá og veitir þeim stórmannlega og vel. Þetta spyrst víða. Einar Járnskeggjason býður þeim þar og oft að vera með sér og eru þeir nú kátir. Er nú til þess að taka, er Þórarinn réð, að menn voru þeir með Barða er mikils voru verðir og mikils áttu kosti, láta nú gera eftir fé sínu vestur og ætla enn utan um sumarið.

40 kafli

Það var um veturinn að maður spurði Eirík skáld að atburðum og hversu mikið mannfall yrði.

Hann kvað vísu:

Lágu lýðar frægir

lögðis skeiðs á heiði,

lind sprakk í rym randa

rauð, ellefu dauðir.

Hitt var áðr, er auðar

ógnar gims í rimmu,

jókum sókn við sæki

sárþíslar, fékk Gísli.

Enn verður þess dæmi að nú var spurt hve margir fallnir voru af hvorum.

Hann kvað vísu:

Þrír hafa alls af óru

ítrstalls liði fallið,

vér ruðum sverð í sárum,

sigrborðs viðir norðan.

En fúrþollar fellu

Fjölnis seiðs á heiði,

gerðist grimmt með fyrðum

gunnél, níu sunnan.

Þá verður um rætt að mjög hefði á vegist þeirra lið, sunnanmanna.

Þá kvað hann vísu:

Styrr lét snar og Snorri

sverðþing háið verða,

þar er gnýverðir gerðu

Gíslunga hlut þungan.

En varð eigi in minna

ættskarð, það er hjó Barði,

fell geysla lið Gísla,

gunnnárunga sunnan.

41 kafli

Nú tóku þeir fé sitt, félagar Barða, og bjuggust til utanferðar með góðan fjárhlut. Barði sendir orð og þeir bræður að þeir vilja hafa land sitt og selja, þykjast þurfa lausafé. Hann vill eigi láta laust landið, vill að kaupið sé sem ætlað var. Verða nú annaðhvort að missa fjárins eða drepa hann. Nú segir Eyjólfur að hann mun fá þeim jafnmikil fé sem land er vert en hann eigi við hann, kveðst skulu annaðhvort á því sumri hafa drepið hann eða rekið af landinu og kastað sinni eign á.

Barði kaupir skip er uppi stóð í Húsavík. Fóru þá utan og leiddi Eyjólfur þá virðulega í braut og ferst nú vel og kemur af hafi norður í Þrándheimi í Kaupangi, lætur nú upp setja skip sitt og búa um vel. Ólafur konungur hinn helgi réð þá fyrir Noregi. Var hann í kaupbænum.

Barði gengur fyrir konung og hans förunautar, kvöddu konung vel sem sæmdi "og er á þá leið herra," segir Barði, "að vér vildum vera veturgestir þínir."

Konungur svarar á þá leið: "Vér höfum frétt til þín Barði," segir hann, "að þú ert ættstór maður og mikill fyrir þér og þér eruð vasklegir menn og hitt í nokkur stórræði og rekið harma yðvarra og verið þó lengi fyrir og þó hafið þér nokkuð forneskju og þess konar átrúnað sem oss er óskaptíður. Og fyrir þá sök að vér höfum það svo mjög frá oss skilið þá viljum vér eigi taka með yður. En þó skulum vér vera vinir yðrir Barði," segir hann, "og mun nokkuð mikillegt fyrir yður liggja. En það kann oft verða er menn hitta í slíka hluti og verður svo mikið rið að ef nokkuð verður við blandið forneskju að menn trúa á það of mjög."

Þá mælti Barði: "Ei er sá maður," segir hann, "er eg vildi heldur minn vin en yður og kunnum vér þökk þinna ummæla."

Barði hefir þar bæjarsetu um veturinn og virðist öllum vel. En um vorið býr hann skip sitt til Danmerkur og er þar vetur annan í góðu yfirlæti. Og nú er ekki getið tíðinda.

Eftir þetta býr hann skip sitt til Íslands og komu fyrir norðan land út og voru mjög svo félausir. Guðmundur var þá andaður og kom Eyjólfur þá í mót þeim og bauð til sín og síðan fór hver til sinna heimkynna er allir voru sýknir. Eyjólfur gefur þeim bræðrum upp föðurleifð sína og lýsti enn stórmennsku sína sem fyrr og veitti þeim engi maður jafnmikið lið sem hann.

Barði fer til mágs síns Guðbrands. Hann var bæði auðigur og kynstór og kallaður nokkuð féfastur. En bræður Barða fóru til Borgar hinnar syðri til Eyjólfs mágs síns. Þá var fóstra þeirra dauð. Nú keypti Eyjólfur allt land undir þá bræður og leysir Barða frá með lausafé. Setja nú bú saman á föðurleifð sinni og urðu ellidauðir, nýtir menn og ei jafnmiklir sem ættin þeirra og báðir kvongaðir og menn frá þeim komnir.

42 kafli

Barði ríður til þings eftir er hann hafði einn vetur verið hér á landi. Þá bað hann sér konu. Sú hét Auður, dóttir Snorra goða, og er hún föstnuð honum og skyldi brúðlaup vera um haustið í Sælingsdal að Snorra goða föður hennar. Eigi er á kveðið hve mikið fé henni skyldi heiman fylgja en líklegt að vera mundi góður sómi. Hún var skörungur og unni Snorri henni mikið. Móðir hennar var Þuríður Illugadóttir hins rauða.

Barði ríður til Vatnsdals um þingið til mága sinna og unir vel við sína ferð og hefir góða virðing af mönnum. Og fór eftir því sem vitrir menn höfðu fyrir séð að sætt manna hélst sem á var kveðið og er ekki getið þeirra viðskipta síðan.

Nú býr Snorri veisluna um haustið sem ætlað var og kemur þá fjölmenni mikið og fer hún fram skörulega sem von var og er Barði þar um veturinn og bæði þau. En um vorið fara þau í braut með allt sitt og skiljast þeir góðir vinir, Barði og Snorri, og fer hann nú norður í Vatnsdal og er þar með Guðbrandi mági sínum.

Og að vori býr hann ferð sína, kaupir skip og fer utan og kona hans með honum og er sagt að honum greiðist vel ferðin og kemur af hafi norður við Hálogaland og er þar um veturinn í Þjóttu með Sveini Hárekssyni og var vel virður og þóttust menn sjá á honum stórmennsku og virti hann þau bæði mikils.

43 kafli

Svo bar til einn morgun er þau voru úti í skemmu bæði að Barði vildi sofa en hún vildi vekja hann og tekur eitt hægindi lítið og kastar í andlit honum svo sem með glensi. Hann kastaði braut og fer svo nokkurum sinnum. Og eitt sinn kastar hann til hennar og lætur fylgja höndina. Hún reiðist við og hefir fengið einn stein og kastar til hans.

Og um daginn eftir drykkju stendur Barði upp og nefnir sér votta og segir skilið við Auði og segir að hann vill eigi af henni ofríki taka né öðrum mönnum. Ekki tjáir orðum við að koma, svo er þetta fast sett.

Er nú fjárhlutum skipt þeirra í milli og hann ræðst þaðan í braut um vorið og lætur eigi af ferð sinni fyrr en hann kom í Garðaríki og gekk þar á mála og var þar með Væringjum og þótti öllum Norðmönnum mikils um hann vert og höfðu hann í kærleikum með sér. Ávallt er konungs ríki skal verja er hann í leiðangri og fær gott orð af hreysti sinni og hefir um sig mikla sveit manna. Þar er Barði þrjá vetur í mikilli sæmd frá konungi og öllum Væringjum.

Og eitt sinn er þeir voru á galeiðum við her og vörðu enn konungs ríki þá kom að þeim her. Gera nú bardaga mikinn og fellur mjög lið konungs er við ofurefli var að brjótast og gerðu áður mörg stór verk. Og þar féll Barði við góðan orðstír og hafði drengilega neytt sinna vopna til dauða.

Auður var gift öðrum ríkum manni, syni Þóris hunds er Sigurður hét, og eru þaðan komnir Bjarkeyingar, hinir ágætustu menn.

Og lýkur þar þessi sögu.